Hitatækni og Fríorka hafa sameinað krafta sína og mynda nú öfluga og heildstæða einingu á sviði upphitunar, kælingar, loftræstingar og sjálfbærra orkulausna. Sameiningin markar upphaf nýs kafla þar sem reynsla, fagþekking og slagkraftur beggja fyrirtækja mætast til að veita viðskiptavinum okkar enn betri, skilvirkari og framtíðarmiðaðar lausnir.
Með sameiningunni eykst geta okkar til að takast á við fjölbreytt verkefni af öllum stærðargráðum. Við leggjum áherslu á að einfalda ferla og bjóða heildarlausnir þar sem öll sérfræðiþjónusta er á einum stað.
Starfsemi á einum stað.
Fríorka hefur flutt starfsemi sína og starfar nú alfarið frá höfuðstöðvum Hitatækni að Smiðjuvegi 11a, 200 Kópavogi (gul gata).
Hluti af NIBE Partner Group.
Hitatækni er orðin hluti af NIBE Partner Group, sem styrkir stöðu okkar til muna og veitir aðgang að alþjóðlegri þekkingu og framsæknum tæknilausnum á sviði sjálfbærrar orku.
Sameiningin styrkir þjónustu okkar og skapar ný tækifæri fyrir viðskiptavini — í dag og til framtíðar.
Smiðjuvegur 11a, 200 Kópavogur – gul gata
Hitatækni ehf. Aðsetur fyrirtækisins er að Smiðjuvegi 11a. Kópavogi. Gul gata, s: 588 6070. Neyðarnúmer: 665 5800